Skemmtilegt
Barnið litar brot, telur kubba og dregur punkta á talnalínu. Alfa hvetur og hjálpar.

Árangursríkt
Það sem barnið lærir kemur aftur eftir 2, 7, 21 og 60 daga. Þannig festist það í minni.
- 1
- 2
- 7
- 21
- 60
Ókeypis
Allt kennsluefnið og ein æfing á dag. Alfa+ fyrir þau sem vilja æfa meira.

Alfa gefur ekki svarið. Barnið finnur það sjálft.
Mörg öpp leysa dæmið fyrir barnið. Í Alfa hugsar barnið sjálft. Ef svarið er rangt fær það vísbendingu og reynir aftur.


Svona virkar Alfa
Smá á hverjum degi, í langan tíma. Þannig lærist stærðfræði.
1Barnið velur þrjú hugtök
Til dæmis brot, ummál og neikvæðar tölur. Útskýringar fylgja hverju hugtaki.
2Ein stutt æfing á dag
Um níu dæmi sem byrja létt og þyngjast, með upprifjun inn á milli.
3Hæfnigripurinn fær lit
Þegar barnið man færnina vikum seinna. Svo tekur nýtt hugtak við.
Byggt á rannsóknum
Þrjár niðurstöður um hvernig nám festist og hvar þær birtast í Alfa.
Að svara sjálfur festir betur en að lesa aftur.217 rannsóknirÍ hverri æfingu svarar barnið sjálft.
Samantekt 217 rannsókna. Meðaláhrifin eru g = 0,61 miðað við að læra án þess að svara spurningum. Traust niðurstaða.
Adesope, Trevisan og Sundararajan (2017), Review of Educational ResearchStutt og oft endist betur en mikið í einu.317 tilraunirHver færni kemur aftur eftir 2, 7, 21 og 60 daga.
Samantekt 317 tilrauna úr 184 greinum. Flestar mæla hversu vel fólk man orð og staðreyndir, ekki stærðfræði sérstaklega. Traust niðurstaða.
Cepeda, Pashler, Vul, Wixted og Rohrer (2006), Psychological BulletinBlönduð dæmi kenna betur en mörg eins í röð.Ein stór rannsóknUpprifjun úr eldri hugtökum blandast inn í hverja æfingu.
Slembiröðuð rannsókn í 54 bekkjum í 7. bekk, alls 787 nemendur. Mánuði seinna fékk blandaði hópurinn 61% á óvæntu prófi en hinn hópurinn 38%.
Rohrer, Dedrick, Hartwig og Cheung (2020), Journal of Educational PsychologyÓkeypis eða Alfa+
Ókeypis
0 kr.
- Allt kennsluefnið
- Ein æfing á dag
- Þrjú hugtök í einu
Alfa+
Mánaðar- eða ársáskrift
- Allt kennsluefnið
- Eins margar æfingar og barnið vill
- Allt að sjö hugtök í einu og hægt að skipta
Spurningar
Er Alfa Nám leikur?
Nei. Alfa notar sumt úr leikjum, eins og hæfnigripi og hrós, svo það sé gaman að æfa. Markmiðið er að barnið kunni stærðfræðina, líka eftir nokkra mánuði.
Þarf barnið að taka stöðupróf?
Nei. Barnið velur bekkinn sinn og byrjar strax.
Hvað tekur ein æfing langan tíma?
Um níu dæmi, oftast nokkrar mínútur.
Er hægt að ná hæfnigrip á einu kvöldi?
Nei. Hæfnigripur fær lit þegar barnið man færnina dögum seinna. Það er ekki hægt að flýta því.



